JAFNRÉTTISÁÆTLUN

Tilgangur
Jafnréttisáætlun þessi tekur til allra starfsmanna Tengis samkvæmt lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Tengis þau réttindi sem kveðið er á um í jafnréttislögum. Öllum starfsmönnum sé tryggð sömu tækifæri til starfsþróunar og endurmenntunar og að öll kyn eigi jafna möguleika á starfi hjá fyrirtækinu.

Launajafnrétti
Við launaákvarðanir skal tryggt að jafnhæfum starfsmönnum séu greidd sambærileg laun fyrir sömu störf og jafnverðmæt störf. Laun eru ákveðin út frá hæfni, getu og menntun starfsmanns óháð kyni.

MARKMIÐAÐGERÐÁBYRGÐTÍMARAMMI
Að konur og karlar og fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá fái jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf.Launaviðmið séu skýr og
eru laun og fríðindi starfsmanna greind árlega.
Leiðrétta skal laun ef fram kemur óútskýranlegur munur á launum kynjanna.
Framkvæmdastjóri Launagreining í mars ár hvert.
Viðhald jafnlaunavottunar ÍST 85: 2012 Að kynbundinn launamunur mælist minni en 2%Fjármálastjóri Launagreining í mars ár hvert.
Markmið jafnlaunastefnu Tengis er að tryggja öllum starfsmönnum jöfn tækifæri og sambærileg laun skulu greidd fyrir jafnverðmæt störf. Tengi sér um að gerðar séu reglubundnar athuganir hvort launastefnunni sé fylgt og gerir ráðstafanir til að laga öll frávik frá málefnalegum ákvörðunum. Framkvæmdastjóri Rýni stjórnenda í mars ár hvert.

Ráðningar, starfsþróun, fræðsla og endurmenntun starfsmanna
Þegar auglýst er eftir nýjum starfsmanni skal leggja áherslu á hvetja öll kyn til að sækja um starfið. Mat á umsækjendum byggist aðeins á hæfni og getu viðkomandi umsækjanda. Starfsþjálfun og endurmenntun skal standa öllum starfsmönnum til boða óháð kyni. Tryggja skal að allir starfsmenn óháð kyni geti sótt námskeið sem haldin eru sérstaklega til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf.

MARKMIÐFRAMKVÆMD ÁBYRGÐTÍMARAMMI
Að laus störf hjá
fyrirtækinu standi
opin öllum kynjum.
Auglýsingar um störf eru ókynbundin og kröfur sem settar eru fram séu í samræmi við starfs- og hæfnislýsingar FramkvæmdastjóriUpplýsingar um kynjahlutföll í ráðningum umsækjenda um störf.
Jöfn staða og tækifæri séu til grundvallar hvað varðar starfsþróun, fræðslu og endurmenntun Að stjórnendur greini þörf fyrir fræðslu í starfsþróunarsamtali. Allir starfsmenn hvattir til að sækja sér endurmenntun eða fræðslu. FramkvæmdastjóriNiðurstöður könnunar þar sem mælt er viðhorf starfsmanna til fræðslu og endurmenntunar. Lokið í júní ár hvert.
Markið er að auka hlut kyn sem hallar á með ráðningum Við mat á umsækjendum þegar tveir eða fleiri eru jafn hæfir að ráða þá einstakling af því kyni sem hallar á. Framkvæmdastjóri Engin tímarammi.

Samræming milli fjölskyldu- og atvinnulífs
Tengi leggur áherslu á að starfsmenn geti með góðum hætti samræmt fjölskyldulíf og starfsskyldur sínar eins og fremsti kostur er. Sveigjanleiki er gefin starfsmönnum eins og unnt er í samráði við næsta yfirmann. Tekið er bæði tillit til fjölskylduaðstæðna starfsmanna og þarfa fyrirtækisins.

MARKMIÐFRAMKVÆMD ÁBYRGÐTÍMARAMMI
Jöfn staða og tækifæri fyrir starfsmenn óháð kyni þegar kemur að samræmingu vinnu og einkalífs. Sveigjanlegur vinnutími þar sem því verður við komið. StjórnendurNiðurstöður könnunar þar sem mælt er viðhorf starfsmanna til samræmingu vinnu og einkalífs. Lokið í júní ár hvert.
Jöfn staða og tækifæri óháð kynferði vegna fjarveru að fjölskylduástæðum. Hvetja starfsmenn til að nýta sér fæðingarorlofsrétt sinn.
Kynna starfsmönnum réttindi og skyldur sem það hefur gagnvart vinnustaðnum.
Stjórnendur Fjöldi starfsmanna sem fara í leyfi og orlof vegna fjölskylduaðstæðna. Lokið í júní ár hvert.

Einelti, kynferðisleg áreitni og kynbundið ofbeldi
Kynferðislegt áreiti, kynbundið ofbeldi og áreitni, né einelti verður liðið. Tekið verður á öllum atvikum sem starfsmenn verða vísir að, tilkynntum eða ekki. Yfirmenn á hverjum stað skulu gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk og viðskiptavinir verði fyrir slíkum atburðum. Yfirmenn skulu gera ráðstafanir eins og þörf er á til að uppræta slíka hegðun ef slíkt atvik kemur upp. Berist kæra á hendur yfirmanni skal hann ekki taka neinar ákvarðanir varðandi starfsskilyrði kæranda heldur hans næsti yfirmaður.

MARKMIÐFRAMKVÆMD ÁBYRGÐTÍMARAMMI
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðið hjá Tengi. Til staðar sé áætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi, þar sem hún er kynnt og gerð öllum starfsmönnum aðgengileg á heimasíðu Tengis. Áætlun sé kynnt eigi síðar en 30.mars 2022
Forvarnaráætlun unnin fyrir Tengi. Áætlun sé kynnt eigi síðar en 30.mars 2022
Framkvæmdastjóri
Stjórnendur
Lokið í mars ár hvert

Eftirfylgni og endurskoðun

MARKMIÐFRAMKVÆMD ÁBYRGÐTÍMARAMMI
Að jafnréttisáætlunin skili tilætluðum árangri. Viðhorfskönnun meðal
starfsfólks með tilliti til
verkefna áætlunarinnar.
Framkvæmdastjóri
Gildistími áætluninnar er 3 ár.