Við erum afar stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu sem við hljótum nú annað árið í röð og munum nýta hana sem frekari hvatningu við að byggja upp og hlúa að okkar frábæra teymi hjá Tengi.
Ummæli VR vegna fyrirtæki ársins 2020
“Tengi er Fyrirtæki ársins annað árið í röð en var í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja fimm árin þar á undan. Einkunnir Tengis hækka lítillega á milli ára, heildareinkunn var 4,55 árið 2019 en er 4,61 í ár. Hæsta einkunn Tengis er fyrir þáttinn ímynd fyrirtækis, 4,89. Tengi vermir efsta sætið í sínum stærðarflokki í tveimur lykilþáttum, starfsanda þar sem einkunn fyrirtækisins er 4,77 og þættinum ánægja og stolt af fyrirtæki en þar er einkunnin 4,81. Lægsta einkunn er fyrir launakjör, 4,13, sem er þó mun hærri einkunn en meðaltalið í þessum stærðarflokki sem er 3,48.”
Kynntu þér niðurstöður frekar hjá VR
https://www.vr.is/kannanir/fyrirtaeki-arsins-2020/fyrirtaeki-arsins-2020/